Verkefni 5 snýst um að endurútfæra framenda úr seinna hópverkefni í vefforritun 1, 2018 með React.
Fylgja skal útliti sem gefið er í hópverkefni 2, og er grunnur að lausn uppsettur með Sass og búið er að færa einhvern hluta af útliti úr sýnilausn yfir.
Birta þarf upplýsingar úr lectures.json
bæði á yfirlitssíðu og fyrir hvern og einn fyrirlestur. Lesa má nánar um uppsetningu á json skrá í lýsingu á hópverkefni 2.
Titill skal vera „Fyrirlestrar“ fyrir forsíðu en titill fyrirlesturs fyrir hvern stakan fyrirlestur. Hver fyrirlestur skal svara á /:slug
, setja skal upp routing með react-router
.
Á forsíðu skal vera hægt að sía fyrirlestra eftir flokkum: HTML
, CSS
og JavaScript
.
Fyrir hvern fyrirlestur þarf að birta efni úr content
fylki fyrirlesturs. Útfæra þarf react component sem gerir þetta.
Gefinn er grunnur að „statísku“ API sem skilar gögnum og leyfir að merkja fyrirlestur sem kláraðann. Gögn um kláraða fyrirlestra skal geyma í localStorage
.
Titil á síðu skal breyta með react-helmet
.
Útfæra ætti fleiri en færri componenta, í sýnilausn eru t.d. útfærðir eftirfarandi components (þeir gætu verið fleiri):
filters
, birtir síur og sér um að viðhalda stöðu um hvaða síur séu virkarheader
, birtir haus síðu, titil, flokk og hugsanlega mynditem
, tekur við fylki af efni fyrir fyrirlestur og skilar HTML elementumlecture
, birtir fyrirlesturlectures
, birtir lista af fyrirlestrum
Milli filters
og lectures
þarf að mynda tengls (senda föll á milli og láta foreldri sjá um stöðu) þ.a. þegar smellt er á síu fái lectures
nýjan lista af síuuðum fyrirlestrum. Farið yfir í fyrirlestri 9.
og í routes/
ættu að vera síður fyrir
home
, yfirlitssíðalecture
, stakur fyrirlestur, má heita sama og component, myndi setja saman viðeigandi componenta, þ.m.t.lecture
componentnot-found
, 404 síða
Allar myndir sem þarf eru gefnar undir public/img/
.
Ekki þarf að bæta við fleiri pökkum en eru í grunn að lausn.
Alls ekki ætti að nota neinar DOM aðferðir í lausn.
Verkefni þetta er sett fyrir á GitHub og almennt ætti að skila því úr einka (private) repo nemanda. Nemendur geta fengið gjaldfrjálsan aðgang að einkarepos á meðan námi stendur, sjá https://education.github.com/.
Til að byrja er hægt að afrita þetta repo og bæta við á sínu eigin:
> git clone https://github.com/vefforritun/vef2-2019-v5.git
> cd vef2-2019-v5
> git remote remove origin # fjarlægja remote sem verkefni er í
> git remote add origin <slóð á repo> # bæta við í þínu repo
> git push -u origin master # ýta á nýtt origin og tracka branch
- 10% – Snyrtilegur kóði, engar villur þegar
npm test
er keyrt - 30% – Yfirlitssíða með síu
- 40% – Fyrirlestrarsíða útfærð með efni
- 10% – Hægt að skrá að fyrirlestur sér kláraður
- 10% – Verkefni uppsett á Heroku
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri fimmtudaginn 7. mars 2019.
Skila skal undir „Verkefni og hlutaprófa“ á Uglu í seinasta lagi fyrir lok dags föstudaginn 22. mars 2019.
Skilaboð skulu innihalda:
- Slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru
freyrdanielsson
,gunkol
,kth130
- Slóð á verkefni keyrandi á Heroku
Sett verða fyrir sex minni verkefni þar sem fimm bestu gilda 6% hvert, samtals 30% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 15%, samtals 30% af lokaeinkunn.
Verkefnahluti gildir 60% og lokapróf gildir 40%. Ná verður bæði verkefnahluta og lokaprófi með lágmarkseinkunn 5.
Útgáfa 0.1
Útgáfa | Lýsing |
---|---|
0.1 | Fyrsta útgáfa |
0.2 | Bæta við mati um snyrtilegan kóða |